Bílskýli, útigeymsla, skyggni o.fl. - Endurnýjun
Laugarásvegur 21
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 774
25. maí, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2020 þar sótt er um leyfi til þess að reisa bílskýli og útigeymslu við lóðarmörk, skyggni yfir aðalinngang einbýlishúss, ásamt breytingum tengdum endurskipulagningu lóðar, s.s. landmótun, uppsetningu stoðveggja og staðsetningu á heitum potti, bílastæðum ofl. á lóð nr. 21 við Laugarásveg.
Stækkun: 45.4 ferm., 136.2 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.380.4 síðast breytt í ágúst 1971 og yfirlit breytinga. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Laugarásvegi 15, 17, 17a, 19, 23 og 25 og Kleifarvegi 12 og 14.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104767 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016687