Kvistur og svalir á rishæð
Reykjahlíð 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja kvisti, koma fyrir svölum á þaki og koma fyrir salerni á rishæð íbúðarhúss á lóð nr. 8 við Reykjahlíð.
Stækkun: 5.0 ferm., 11.6rúmm. Erindi fylgir fylgiskjal nr. 1, skýringarmynd tekin af vef Þjóðskrár 17. febrúar 2020, útskrift úr gerðarbók skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019 og samþykki meðlóðarhafa þar sem vísað er til teikninga dagsettum 24. febrúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. maí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Barmahlíð 6 og 8, Reykjahlíð 10, Mávahlíð 1 og Eskihlíð 23, þegar lagfærðir uppdrættir hafa borist embættinu.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 106993 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013441