Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn,um Steindórsreit
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 111
25. ágúst, 2021
Frestað
Fyrirspurn
Fyrirspurn um aðstæður við Steindórsreitinn sem er vestast í vesturbænum. Um er að ræða  frágang á athafnasvæði við Steindórsreit. Vakin hefur verið athygli fulltrúa Flokks fólksins á að þar sé slysahætta. Um er að ræða vestast á Sólvallagötunni og vestast á Hringbrautinni við hringtorgið við J.L. húsið.  Kringum Steindórsreit er búið að setja krossviðarplötur yfir gangstéttar sem veldur því að ökumaður sem keyrir vestur eftir Hringbraut og beygir til hægri út á Granda, hægra megin á hringtorginu getur með engu móti séð, gangandi, hjólandi fólk hvorki á vespum né  hlaupahjólum sem fara yfir gangstétt beint séð frá vestri inn á Sólvallagötuna. Þarna hefur orðið slys. Hvað hyggjast skipulagsyfirvöld gera í þessu máli? Þarna er búið að byggja stóran grjótgarð, taka gangstéttir í burtu og er aðgengi slæmt. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa haft eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefið framkvæmdaleyfi, þ.m.t. hvort að ásigkomulagi, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar sé ábótavant eða hvort að af henni stafi hætta.
Svar

Frestað.