Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn,varðandi Laugarásveg
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 107
9. júní, 2021
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Nýlega var ákveðið að lækka hraðann á Laugarásvegi og fleiri íbúðagötum og götum þar sem börn fara um niður í 30. Hins vegar vantar enn hraðamerkingar t.d. á Laugarásvegi. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvenær eigi að setja um þessi skilti? Hvenær á að klára verkið? Ekki dugar að hætta við verk þegar hálfnað er. 
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds.