Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, um málun bílastæða/gatna í miðbænum
Síðast Frestað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 101
28. apríl, 2021
Frestað
Fyrirspurn
Fyrirspurn um málun bílastæða/gatna í miðbænum. Fulltrúi Flokks fólksins óskar að fá upplýsingar um stöðu mála um málun bílastæða/gatna í miðbænum. Fulltrúi Flokks fólksins spyr einnig hver hefur umsjón með málningu gatna/bílastæða hér í miðbænum? Ástæða fyrirspurna er að borið hefur á því að hlaupið hefur verið frá óloknu verki með þeim afleiðingum að ökumenn eiga erfitt með að sjá hvar stæði enda og byrja. Skort hefur á eftirliti með verkum eða þau hreinlega eftirlitslaus? Tryggja þarf ábyrgt eftirlit með málum af þessu tagi eins og öðrum málum.
Svar

Frestað.