Hjólastæði við biðstöðvar strætó, fyrsti áfangi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 68
15. apríl, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram bréf skrifstofu Samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 30. mars 2020, þar sem óskað er heimildar til að ljúka undirbúningi og koma í framkvæmd uppsetningu á hjólastæðum við valdar biðstöðvar almenningssamgangna í samræmi við Hjólreiðaáætlun 2015-2020.
Svar

Samþykkt.