Einholt 6 stæði hreyfihamlaðra, stæði fyrir hreyfihamlaða
Einholt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 42
3. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt er til að eitt svæði við Einholt 6 verði merkt sérstaklega fyrir hreyfihamlaða. Stæðið verði merkt með D01.21 og viðeigandi yfirborðsmerkingu. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 30. júní 2019. Samþykkt með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins sbr. 2. mgr. 81.gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Bókanir og gagnbókanir
  • Flokkur fólksins
    Flokkur fólksins fagnar nýjum stæðum fyrir hreyfihamlaða en telur að fleiri stæði þurfi að koma til í Einholtinu.