Kjalarnes, Varmidalur, Ósk um heimild til lóðaafmörkunar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 50
2. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt er fram bréf frá skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar dags. 28. maí 2019 þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og samgönguráðs til lóðaafmörkunar fyrir sumarhúsalóðir í Varmadal. Með bréfinu er einnig er lagt fram skýringarkort af Varmadal ásamt bréfi skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar til borgarráðs dags. 14. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir heimild til að gefa út lóðauppdrætti í tengslum við endurnýjun ótímabundinna lóðarleigusamninga fyrir frístundahús. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 30. sept. 2019. Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2019 .