Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Leikvöllur við Laufrima (USK2019100034)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 54
13. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:  Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði óska eftir upplýsingum um það hvort að setja eigi aftur upp leikvöll fyrir neðan Laufskála við Laufrima í Grafarvogi. Fyrir um tveim árum síðan þá voru öll leiktæki fjarlægð af þessum leikvelli. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 28. október 2019.