Katrínartún/Guðrúnartún, Bann við vinstribeygjum
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 30
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra dags. 21. febrúar 2019 að sett verði bann við því að taka vinstribeygju frá Katrínartúni á gatnamótum við Guðrúnartún og að einungis verði heimilt að beygja til hægri frá Guðrúnartúni á gatnamótum við Katrínartún. Samþykkt með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins sbr. 2. mgr. 81.gr. umferðarlaga nr. 50/1987.