Fyrirspurn frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Upplýsingar um hávaða vegna bílaplans við Egilshöll í Grafarvogi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 26
30. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði óska eftir upplýsingum um það hvort að íbúar hafi kvartað undan hávaða vegna bílaplans við Egilshöllina í Grafarvogi, þar sem áhugasamir ökuþórar hafa verið að nýta sér svæðið með tilheyrandi hávaða. Ef borist hafi kvartanir hversu margar hafa þær verið og hvernig hefur þeim þá verið svarað ? Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. janúar 2019.  Svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags, 28. janúar 2019 lagt fram.