Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks, salernisaðstaða við Gufunesbæ.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 19
28. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks varðandi að salernisaðstaða verði sett upp við Gufunesbæ. Svæðið umhverfis Gufunesbæ er gríðarlega fjölsótt. Ekkert aðgengi er að salernum á svæðinu eftir opnunartíma frístundamiðstöðvarinnar. Einungis þeir hópar sem hafa pantað afnot af svæðinu utan opnunartíma geta fengið aðgang að salernum með því að starfsmaður Gufunesbæjar sé á staðnum og er þá greitt fyrir slíka þjónustu. Leggja fulltrúar Sjálfstæðisflokks til að komið verði upp aðstöðu sem börn og fullorðnir hafi aðgang að eftir opnunartíma Gufunesbæjar.  Frestað.