Krókháls, GR reitur G1, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 120
10. nóvember, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga KRADS arkitekta, f.h. umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. október 2021, að breytingu á deiliskipulagi fyrir Grafarlæk - Stekkjarmóa - Djúpadal. Um er að ræða nýja lóð þar sem er gert ráð fyrir tveimur skrifstofubyggingum sem grafa sig inn í hæðina að hluta til að falla betur inn í umhverfið og halda hæð og ásýnd bygginga lægri út að golfvallarsvæði GR. Hæðarmunur á lóð er nýttur til að koma fyrir bílakjallara undir byggingunum og skýla útivistarsvæði GR frá bílastæðasvæði.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundabúnaði.