Laugardalur, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 111
25. ágúst, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Laugardals. Breytingin felur í sér skilgreiningu íþróttamannvirkja á svæði austan Laugardalsvallar. Gerðir verða nýir gervigrasvellir á svokölluðum Valbjarnarvelli. Gert er ráð fyrir tveimur nýjum gervigrasvöllum til æfinga og að þeir verði afgirtir með netgirðingum og heimilt verði að reisa ljósmöstur við vellina. Áfram er gert ráð fyrir núverandi tennisvöllum og opnum göngu og skokkleiðum á milli Laugardalsvallar og gervigrasvalla, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 28. apríl 2021, br. 20. ágúst 2021. Tillagan var auglýst frá 15. júní 2021 til og með 28. júlí 2021. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir/umsögn: Lilja Sigrún Jónsdóttir, f.h. stjórnar Íbúasamtaka Laugardals dags. 28. júlí 2021 og Veitur dags. 28. júlí 2021. Einnig er  lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. ágúst 2021.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.