Blikastaðavegur 10, breyting á deiliskipulagiVeitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 ReykjavíkArkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík
Blikastaðavegur 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulags- og samgönguráð nr. 105
26. maí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 30. apríl 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 10 við Blikastaðaveg. Í breytingunni felst að stækka aðveitulóð, bæta við byggingarreit og auka byggingarmagn, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 20. apríl 2021. 
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
112 Reykjavík
Landnúmer: 109211 → skrá.is
Hnitnúmer: 10107876