Iðunnarbrunnur 6 og 8,breyting á skilmálum deiliskipulags
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 98
24. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á skilmálum deiliskipulags Úlfarsárdals vegna lóðanna nr. 6 og 8 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni felst lagfæring á heimiluðu byggingarmagni, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. 18. mars 2021. 
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.