Vesturlandsvegur, breyting á deiliskipulagiLandslag ehf, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 98
24. mars, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar. Í breytingunni felst færsla á skipulagsmörkum á nokkrum stöðum, áætluð akstursundirgöng sunnan Grundarhverfis eru felld niður, almennar stígabreytingar, svæði fyrir hljóðvarnir skilgreindar o.fl., samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Einnig er lögð fram greinargerð, skilmálar og umhverfisskýrsla dags. 7. júní 2018, br. 8. mars 2021, hljóðvistarskýrsla Eflu dags. 10. mars 2021 og hljóðvistarkort dags. í mars 2021.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir deildarstjóri samgangna ásamt Önnu Elínu Jóhannsdóttur og Rúnu Ásmundsdóttur frá Vegagerðinni taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.