Kjalarnes, Hof, breyting á deiliskipulagiLandslag ehf, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 98
24. mars, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjuhofs á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Esjuhofs hliðrast um 2-3 m til austurs, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir deildarstjóri ásamt Önnu Elínu Jóhannsdóttur og Rúnu Ásmundsdóttur frá Vegagerðinni taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.