Kjalarnes, Skrauthólar, breyting á deiliskipulagiLandslag ehf, Skólavörðustíg 11, 101 Reykjavík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 98
24. mars, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skrauthóla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Skrauthóla er færð til austurs um nokkra metra, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, auk þess að stofnstíg er bætt við, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. 
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir deildarstjóri ásamt Önnu Elínu Jóhannsdóttur og Rúnu Ásmundsdóttur frá Vegagerðinni taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.