Vogabyggð svæði 2, breyting á deiliskipulagi vegna lóða 2-9-1 og 2-9-2Kristinn Ragnarsson, arkit ehf., Hlíðasmára 19, 201 KópavogurVogabyggð ehf., Pósthólf 8787, 108 Reykjavík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 96
24. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 5. febrúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæði 2 vegna lóðanna 2-9-1 og 2-9-2. Í breytingunni felst að lóðarlína á milli lóðanna 2-9-1 og 2-9-2 færist um 10 cm. til norðurs auk þess að sem þríhyrningslaga horn bætist við. Lóð 2-9-1 minnkar um 19,7 m2 og lóð 2-9-2 stækkar sem því nemur, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkit. ehf. dags. 5. febrúar 2021. Jafnframt er lögð fram yfirlýsing lóðarhafa dags. 12. febrúar 2021.
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur  skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.