Grjótháls 1-3, breyting á deiliskipulagiEik fasteignafélag hf., Sóltúni 26, 105 ReykjavíkT.ark Arkitektar ehf., Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Grjótháls 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 96
24. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn T. ark Arkitekta ehf. dags. 18. janúar 2021 ásamt bréfi dags. 18. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Grjótháls. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir dreifistöð sem liggur að vestari lóðamörkum að Grjóthálsi 5, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 15. janúar 2021. Einnig er lagt fram samþykki lóðarhafa að Grjóthálsi 5 mótt. 18. febrúar 2021. 
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur  skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111016 → skrá.is
Hnitnúmer: 10002439