Gufuneshöfði, kæra 125/2020, umsögn, úrskurður
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 93
27. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 26. nóvember 2020 ásamt kæru dags. 20. nóvember 2020 þar sem kærð er útgáfa byggingarleyfis fyrir mastur á Gufuneshöfða og deiliskipulagsbreyting þar af lútandi. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 26. nóvember 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 11. desember 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. ágúst 2020 um að samþykkja byggingarleyfi fyrir innsiglingarmastri við Gufuneshöfða. Kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur frá 2. október 2019 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis er vísað frá úrskurðarnefndinni.