Ártúnshöfði, austurhluti, kæra 94/2020, umsögn, úrskurður
Ártúnshöfði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 94
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 7. október 2020 ásamt kæru dags. 6. október 2020, þar sem kærð er ákvörðun borgarráðs frá 25. júní 2020 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða eystri, afmörkun nýrrar lóðar fyrir allt að þrjú smáhýsi. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 9. nóvember 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála frá 28. janúar 2021. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur frá 25. júní 2020 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða - Eystri.