Blesugróf 30 og 32, breyting á deiliskipulagi
Blesugróf 32
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 93
27. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 30. október 2020, br. 22. janúar 2020, að breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðanna nr. 30 og 32 við Blesugróf. Í breytingunni felst að breytt er texta í skilmálum varðandi byggingarmagn og þar af leiðandi breytt nýtingarhlutfall. Ástæða breytingarinnar er uppgefið byggingarmagn í lóðarleigusamningi. Tillagan var auglýst frá 24. nóvember 2020 til og með 7. janúar 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Cicero lögmannsstofa f.h. Dagbjarts H. Guðmundssonar dags. 12. nóvember 2020, 14 íbúar að Blesugróf dags. 6. janúar 2020 og Dagbjartur H. Guðmundsson f.h. Sýrfells ehf. dags. 7. janúar 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. janúar 2021.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.
108 Reykjavík
Landnúmer: 108879 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008287