Nýr Landspítali við Hringbraut, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 77
1. júlí, 2020
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kanon arkitekta ehf. , dags. 23. júní 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst breikkun á Burknagötu vegna tilkomu borgarlínu og færslu og breytingar á byggingarreitum sunnan götunnar sem nemur breikkuninni. Í tengslum við þessa færslu verða einnig afleiddar breytingar á staðsetningu byggingarreita randbyggðar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Spital ehf., dags. 23. júní 2020. Einnig er lagt fram bréf Gunnars Svavarssonar f.h. NLSH ohf.dags. 19. júní 2020.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.