Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Stefna um íbúðarbyggð, breyting á aðalskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 77
1. júlí, 2020
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju drög að tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. í maí 2020 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er varðar stefnu um íbúðabyggð. Breytingin tekur til eftirfarandi reita, sem verða skilgreindir sem sérstakir byggingarreitir, sbr. stefnu um íbúðabyggð, sem sett er fram á mynd 13 í kaflanum Borgin við Sundið: Arnarbakka, Eddufells-Völvufells.  Rangársels, Háaleitisbrautar-Miklabrautar. Furugerðis-Bústaðavegar og Vindáss-Brekknaáss. Tillagan var kynnt til og með 24. júní 2020. Eftirtaldar stofnanir sendu umsagnir: Bláskógarbyggð dags. 18. júní 2020.  Einnig er lögð fram uppfærð tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. í júní 2020 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er varðar stefnu um íbúðabyggð. 
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að aðalskipulagi í samræmi við 1. mgr. 36. gr. sbr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

Gestir
Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.