Skólavörðustígur 16, breyting á deiliskipulagi
Skólavörðustígur 16 (01.181.0)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 66
11. mars, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar dags. 15. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 16 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit 1. hæðar hússins í krika á baklóð, tala nýtingarhlutfalls er lagfærð og hlutfall A- og B- rýmis er betur skilgreint, samkvæmt uppdr. Arkitektastofunnar Austurvöllur dags. 2. febrúar 2019 br. 5. mars 2020. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs nr. 1020/2019.
Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Landnúmer: 101728 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017674