Vesturgata 67, breyting á deiliskipulagi
Vesturgata 67 (01.133.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 79
26. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Félagsbústaða dags. 23. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi milli Seljavegar og Ánanausta vegna lóðarinnar nr. 67 við Vesturgötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit um 20 cm. til suðurs að garði, heimilt verði að byggja 4 hæðir í stað 2,5 hæðir, svalir megi ná 1,7 metra út fyrir byggingarreit að garði, götuhlið hússins skal taka tillit til aðliggjandi húsa eins og kostur er, lyftuhús má ná 0,8 metra upp fyrir hámarkskvóta vegghæðar, lóð er stækkuð að framanverðu og þar heimilt að setja bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sorpgerði og gróður, byggingarmagn eykst og fjöldi íbúða verður 6 ásamt sameiginlegum rýmum á jarðhæð, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 3. apríl 2020. Tillagan var auglýst frá 20. maí 2020 til og með 1. júlí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Halldóra Haraldsdóttir dags. 30. júní 2020, Stefanía Helga Skúladóttir dags. 30. júní 2020 og 8 eigendur íbúða að Vesturgötu 65A og 65 dags. 30. júní 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2020, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 100224 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122137