Kjalarnes, Nesvík, deiliskipulagÍslenskar fasteignir ehf., Laugavegi 182, 105 ReykjavíkPlúsarkitektar ehf, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 94
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga Plúsarkitekta ehf. að deiliskipulagi fyrir Nesvík á Kjalarnesi, sem felst í uppbyggingu á ferðaþjónustu á jörðinni. Áformin eru að reisa hótel og heilsulind með allt að 100 herbergjum auk 12 stakstæðra húsa sem verða leigð út sem gistirými og þjónustuð af hótelinu. Hönnun og frágangur miðar að því að halda í staðaranda Nesvíkur og falla sem best að landi, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 26. mars 2020 síðast br. 22. janúar 2021. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands dags. 2019, Húsakönnun Fornleifastofnunar Íslands dags. 2020, greinargerð ásamt umhverfisskýrslu dags. 22. janúar 2021, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 6. janúar 2021 og bréf Skipulagsstofnunar dags. 10. desember 2020.
Svar

Samþykkt að endurauglýsa framlagða tillögu, ásamt umhverfisskýrslu sbr. lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.