Freyjubrunnur 23, kæra 102/2019, umsögn, úrskurður
Freyjubrunnur 23 (02.695.4)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 53
6. nóvember, 2019
Annað
‹ 35. fundarliður
36. fundarliður
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 30. september 2019 ásamt kæru dags. 28. september 2019 þar sem kærð er samþykkt borgarráðs frá 18. júlí 2019 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Freyjubrunn 23. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða úr fimm í átta og aukning á byggingarmagni. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 11. október 2019. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða samkvæmt hinni kærðu deiliskipulagsákvörðun. Jafnframt er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 30. október 2019.