Gufuneshöfði, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 50
2. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 2. september 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Gufuneshöfða. Í breytingunni felst að fjarlægja innsiglingarmerki við Gufuneshöfða og koma fyrir nýju innsiglingarmerki um 105 metra til norðausturs, vestan Leiðhamra/Krosshamra. Við þessa breytingu er deiliskipulagssvæðið stækkað og mörk þess færð til norðvesturs yfir hverfisverndarsvæði Gufuneshöfða að strandsvæði, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta ehf. dags. 2. september 2019. Einnig lagt fram umboð Faxaflóahafna sf. dags. 2. september 2019, drög að fornleifaskráningu dags. 2019 og umsögn Umhverfisstofnunar dags. 24. september 2019.  Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.