Brautarholtsvegur milli Hofsgrundar og Arnarholtsvegar, kæra 56/2019, umsögn, úrskurður
Brautarholtsvegur 39
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 59
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 9. júlí 2019 ásamt kæru dags. 9. júlí 2019 þar sem kærð er útgáfa framkvæmdaleyfis á gerð Brautarholtsstíg á Kjalarnesi, útgefið 30. apríl 2019. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 27. ágúst 2019. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 30. desember 2019. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir lagningu göngustígs meðfram Brautarholtsvegi milli Hofsgrundar og Arnarholtsvegar á Kjalarnesi.
Landnúmer: 174435 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015263