Bústaðavegur/Kringlumýrarbraut, framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 61
29. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju umsókn Vegagerðarinnar dags. 15. júlí 2019 um framkvæmdaleyfi vegna m.a. gerðs fráreinar í akstursstefnu til austurs og breikkun rampa til suðurs á Kringlumýrarbraut ásamt breytingu á akstursleið inn á rampann frá norðurakbraut Bústaðavegar og setja ný umferðarljós á rampann. Einnig er lagt fram teikningarsett Hnit verkfræðistofu dags. 10. júlí 2019, Hljóðvistarskýrsla dags. 24. október 2019, minnisblað um Hljóðvistarútreikninga við Bústaðavegdags. 24. október 2019 og Hljóðkort eftir breytingar við Bústaðaveg dags. 25. október 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 4. nóvember 2019 til og með 2. desember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jens Helgason og Guðrún Ragnars dags. 16. nóvember 2019, Logos lögmannsþjónusta f.h. Hjörleifs Pálssonar og Helenu Hilmarsdóttur dags. 21. nóvember 2019 og íbúar við Beykihlíð og Birkihlíð dags. 30. nóvember 2019. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís um Bústaðaveg, umferðarhermun og greining, dags. 30. október 2018, fundargerð vegna kynningarfundar um grenndarkynningu dags. 27. nóvember 2019 og minnisblað Hnit verkfræðistofu vegna grenndarkynningu dags. 17. janúar 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2020. Samþykkt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2020.
Svar

Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata bóka:

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.