Hringbraut 116, Bykoreitur, breyting á deiliskipulagi
Hringbraut (01.138.2)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 43
14. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Byko reitar á lóðinni nr. 77 við Sólvallagötu og nr. 116 við Hringbraut. Breytingin felst í hækkun hámarksfjölda íbúða úr 70 íbúðum í 84, inn- og útkeyrsla í bílakjallara heimiluð frá Hringbraut en engin útkeyrsla við Sólvallagötu, svalir megi ná út fyrir lóðarmörk byggingu sem stendur við Hringbraut samkvæmt greinagerð Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019. Einnig lagður fram deiliskipulagsuppdr. Plúsarkitekta ehf. dags 27. júní 2019. Ennfremur lagðar fram skýringamyndir og skuggavarp, dags. 27.júní 2019., breytt 3. júlí 2019 ásamt greinargerð, Hljóðvistarskýrsla EFLU dags. 17.apríl 2019 og minnisblað EFLU dags. 7.ágsúst 2019 um áhrif á samgöngur. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr.  skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.