Laugavegur sem göngugata, nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 61
29. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir Laugaveginn sem göngugötu, 1. áfanga, sem er í samræmi við samþykkt Borgarstjórnar Reykjavíkur frá 4. september 2018. Í tillögunni felst að hluti Laugavegs, Skólavörðustígs og Vegamótastígs verði gerðir að varanlegum göngugötum og samhliða því er unnið að hönnun ýmissa lausna til að bæta götuna og umhverfið. Gert er ráð fyrir að endurnýja allt yfirborð, gróður, götugögn og lýsingu, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 20. september 2019 br. 6. desember 2019. Tillagan var auglýst frá 14. október 2019 til og með 25. nóvember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðlaugur Ö. Þorsteinsson f.h. Laugaverks ehf. dags. 17. nóvember 2019 og Björn Jón Bragason f.h. Miðbæjarfélagsins í Reykjavík. Einnig eru lögð fram umsögn Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 10. október 2019 og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 21. nóvember 2019. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. janúar 2020. Frestað.
Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Komur og brottfarir
  • - Kl. 9:10 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum.
  • - Kl. 9:15 tekur Þór Elís Pálsson sæti á fundinum.