Frakkastígsreitur 1.172.1, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 46
4. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Zeppelin ehf. dags. 26. júní 2019 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.1, Frakkastígsreits, vegna lóðanna nr. 33, 35 og 37 við Laugaveg og 4 við Vatnsstíg. Í breytingunni felst að húsin við Laugaveg verði gerð upp í upprunalegri mynd, heimilað verði að rífa Laugaveg 33A, húsin við Laugaveg 35 verði hækkuð um eina hæð og timburhús lengt til vesturs, heimilað verði að byggja á baklóð, gamalt timburhús verði flutt og nýlegt steinhús rifið og nýtt hús reist í staðinn, timburhúsið við Vatnsstíg 4 verði rifið og byggt nýtt hús í staðinn ásamt breytingum á lóðarstærðum samkvæmt uppdrætti Zeppelin arkitekta ehf. dags 28. júní 2019, lagfært 22. ágúst 2019. Einnig er lagt fram umboðsbréf og rökstuðning fyrir hóteli ásamt mæli- og hæðarblaði. Einnig er sótt er um breytingu á deiliskipulagi lóða númer 33, 35 og 37 við Laugaveg og Vatnsstíg 4. Gert er ráð fyrir að húsin á Laugavegi verð gerð upp, nema hvað heimilað verði að rífa Laugaveg 33a. Húsin við Laugaveg 35 verði hækkuð um eina hæð og timburhús lengt til vesturs. Einnig verði heimilað að byggja á baklóð. Gamalt timburhús á baklóð Laugavegs 37 verði flutt og nýlegt steinhús rifið. Í þeirra stað verði reist nýtt hús. Timburhúsið á Vatnsstíg verði rifið og nýtt byggt í þess stað. Gerðar verða breytingar á lóðastærðum. Einnig er lagt fram álit Minjastofnunnar dags. 9. ágúst 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Kl. 11:29 víkur Eyþór Laxdal Arndals af fundi

Gestir
Margrét Þormar verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.