Efstaleiti 7, breyting á deiliskipulagi
Efstaleiti 7 (01.745.4)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 55
20. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 18. júní 2019 ásamt bréfi dags. 14. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi RÚV-reits vegna lóðarinnar nr. 7 við Efstaleiti. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits ofanjarðar vegna stigahúss og lyftu, aukningu á byggingarmagni ofanjarðar og breytta skilgreiningu á notkun, samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta ehf. dags. 14. júní 2019, br. 11. nóvember 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. október 2019 til og með 30. október 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasendir: Rauði krossinn dags. 11. október 2019. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 14. nóvember 2019 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2019. Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. nóvember 2019.
Gestir
Jón Kjartan Ágústsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
103 Reykjavík
Landnúmer: 176594 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058295