Úlfarsárdalur, reitir C1, C2, E og G, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 38
29. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals fyrir reiti C1, C2, E og G. Í breytingunni felst að heimildir eru leiðréttar og útskýrðar, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 23. maí 2019.  Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Gestir
Hrafnhildur Sverrisdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.