Teigahverfi, breyting á deiliskipulagi vegna Kirkjuteigs 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 37
15. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 9. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna lóðarinnar nr. 24 við Kirkjuteig. Í breytingunni felst að stækka núverandi byggingu leikskólans þannig að skólinn verði átta deilda leikskóli, færanlegar kennslustofur á leikskólalóðinni verða fjarlægðar, um er að ræða byggingarreit fyrir allt að tveggja hæða byggingu að hluta til og verður hluti þaks á 1. hæð notað sem leiksvæði barnanna, norðan megin við núverandi leikskólabyggingu verður gert nýtt leiksvæði og einnig við lóðarmörk leikskólans í austur sem munu nýtast bæði börnunum í Laugarnesskóla og þeim sem eru á leikskólanum Hofi og lóð leikskólans verður stækkuð til norðurs, samkvæmt deiliskipulag- og skýringaruppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8.maí 2019. Einnig er lagt fram heildaryfirlit lóða leikskólans og grunnskólans ódags. og minnisblað skóla- og frístundasviðs dags. 9. maí 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Hrafnhildur Sverrisdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.