Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Korpulína, breyting á aðalskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram verklýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. í apríl 2019 vegna breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Breytingin nær annarsvegar til legu Korpulínu 1 milli tengivirkisins við Geitháls að tengivirki Korpu við Vesturlandsveg og hinsvegar til lítilsháttar breytingar á legu Rauðavatnslínu 1, frá Geithálsi að aðveitustöð við Suðurlandsveg. Verklýsing umhverfis- og skipulagssviðs samþykkt til kynningar og umsagnar skv. 1. mgr 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.