Laugavegur 20B, breyting á deiliskipulagi
Laugavegur 20B (01.171.5)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 22. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5, Laugavegs- og Skólavörðustígsreita, vegna lóðarinnar nr. 20B við Laugaveg. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, að reisa einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið hússins með þaksvölum og gera inndregna þakhæð, tengibyggingu á millibyggingu milli hornhúss og risshúss, með kvisti til suðurs úr mænisþaki sem veitir aðgang að þaksvölum sem verða yfir endahúsinu, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 22. mars 2019. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 12. nóvember 2018 og 25. mars 2019 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. desember 2018.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101420 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017519