Laugavegur 20B, breyting á deiliskipulagi
Laugavegur 20B (01.171.5)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 46
4. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu lögð fram að nýju umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 22. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5, Laugavegs- og Skólavörðustígsreitir, vegna lóðarinnar nr. 20B við Laugaveg. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, bygging einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið hússins með þaksvölum og gerð inndreginnar þakhæðar, gerð tengibyggingar á millibyggingu milli hornhúss og risshúss með kvisti til suðurs úr mænisþaki sem veitir aðgang að þaksvölum sem verða yfir endahúsinu, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 22. mars 2019, breytt 16. ágúst 2019 ásamt skuggavarpsuppdráttum dags. 16. ágúst 2019. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 12. nóvember 2018 og 25. mars 2019 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. desember 2018. Tillagan var auglýst frá 13. maí til og með 24. júní 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðlaugur Örn Þorsteinsson dags 23. júní 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.  Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.  Vísað til borgarráðs
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101420 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017519