Laugavegur 37, (fsp) nýbygging á baklóð
Laugavegur 37 (01.172.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 39
5. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Smáfugla ehf. dags. 22. mars 2019 um nýbyggingu á baklóð Laugavegs 37. Gert er ráð fyrir að byggt verði ofan á núverandi vinnustofu og að timburbygging á baklóð verði flutt annað. Byggingin verði þrjár hæðir auk rishæðar og kjallara. Á jarðhæð verði gert ráð fyrir verslunum og/eða þjónustu og á efri hæðum verði íbúðir, samkvæmt uppdr. Kurt og Pí ehf. dags. 22. mars 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. maí 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. maí 2019.  Vísað í borgarráð.
Svar

Leiðrétt bókun frá síðasta fundi, dags, 29. maí 2019:Rétt bókun er:

101 Reykjavík
Landnúmer: 101452 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017548