Laugavegur 73, breyting á deiliskipulagi
Laugavegur 73 (01.174.0)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 41
26. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn PKdM Arkitekta ehf. dags. 7. mars 2019 ásamt bréfi dags. 5. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Landsbankareits, Reitur 1.174.0, vegna lóðarinnar nr. 73 við Laugaveg. Í breytingunni felst fjölgun íbúða úr 9 í 10, inngangur að efri hæðum er færður á Laugaveg, inndráttur á 5. hæð sem snýr að Laugavegi vefur verði málsettur á uppdrætti og heimilt er að búnaður á þaki s.s. lyftuhús og tæknibúnaður fari upp fyrir tilgreindan hámarkskóta, samkvæmt uppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 5. mars 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 23. apríl 2019 til og með 21. maí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún Inga Bragadóttir dags. 20. maí 2019. Að loknum athugasemdarfresti bárust athugasemdir frá Stefáni Barða dags. 22. maí 2019 og Þórdísi Jóhannesdóttur, Sigurrósu Svavarsdóttur og Guðfinnu Steinunni Svavarsdóttur dags. 22. maí 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júní 2019. Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. júní 2019 með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs. 
Gestir
Margrét Þormar verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017595