Snorrabraut 54, breyting á deiliskipulagi
Snorrabraut 54 (01.193)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 50
2. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu lögð fram að nýju umsókn Plúsarkitekta ehf. dags. 25. febrúar 2019 um breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að rampur niður í bílakjallara er færður frá suðvesturhorni nýbyggingar að Bergþórugötu (norðurhlið), tengibyggingu milli nýbyggingar og Mjólkurstöðvar bætt við og 100 fermetrum bætt við nýbyggingu. Einnig er bætt við að færsla á lögnum Veitna vegna framkvæmda er á kostnað lóðarhafa ásamt ákvæði um hornsneiðingu við bílrampa, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 28. maí 2019. Tillagan var auglýst frá 28. júní 2019 til og með 9. ágúst 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Bergþór Þórisson dags. 2. júlí 2019, Katrín Guðmundsdóttir, Sveinn Helgi Kjartansson, Kristinn Viggósson, Stefán Árni Auðólfsson, Bjartur Thorlacius, Ásta Teitsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Berglind Rós Magnúsdóttir, Hrafnkell Sigríðarson, Ellen Harpa Kristinsdóttir, Björk Ásgrímsdóttir, Björn Hrannar Björnsson, Karin Schmitz, Andri Ívarsson, Unnur Sól Ingimarsdóttir og Ewa Koprowska ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2019. Samþykkt samkvæmt 43. gr. sbr. 3. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  Vísað til borgarráðs
Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.