Snorrabraut 54, breyting á deiliskipulagi
Snorrabraut 54 (01.193)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 39
5. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn Plúsarkitekta ehf. dags. 25. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að rampur niður í bílakjallara er færður frá suðvesturhorni nýbyggingar að Bergþórugötu (norðurhlið), tengibyggingu milli nýbyggingar og Mjólkurstöðvar bætt við og 100 fermetrum bætt við nýbyggingu. Einnig er bætt við að færsla á lögnum Veitna vegna framkvæmda er á kostnað lóðarhafa ásamt ákvæði um hornsneiðingu við bílrampa, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 28. maí 2019.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu samkvæmt 1. mgr. 43. gr. sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað í borgarráð.