Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Austurbakki 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 31
13. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 21. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að byggingarreitur 6 er stækkaður um u.þ.b. tvo metra þannig að ytri mörk til austurs nái yfir núverandi burðarvegg meðfram rampi í kjallara og leyfilegt byggingarmagni í kjallara á reit 6 fyrir almenna notkun er aukið, samkvæmt uppdr. Batteríssins arkitekta ehf. dags. 1. febrúar 2019. Einnig er lagt fram samþykki lóðarhafa mótt. 8. mars 2019. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.