Háskóli Íslands, breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 41-43 við Suðurgötu og 29 og 31 við Hringbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Andrúms arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2019 ásamt bréfi dags. 20. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, austan Suðurgötu, vegna lóðanna nr. 41-43 við Suðurgötu og 29 og 31 við Hringbraut. Í breytingunni felst að fjölga stúdentaíbúðum á háskólasvæðinu með stækkun á Gamla Garði með viðbyggingu og hugsanlegri nýtingu Stapa sem stúdentaíbúða, samkvæmt uppdr. Andrúms arkitekta ehf. dags. 15. febrúar 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar íslands dags. 15. apríl 2019 og hljóðvistarskýrsla Verkfræðistofunnar Eflu dags. 15. febrúar 2019.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.