Háskóli Íslands, breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 41-43 við Suðurgötu og 29 og 31 við Hringbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 32
20. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram til kynningar umsókn Andrúms arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2019 ásamt bréfi dags. 20. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, austan Suðurgötu, vegna lóðanna nr. 41-43 við Suðurgötu og 29 og 31 við Hringbraut. Í breytingunni felst að fjölga stúdentaíbúðum á háskólasvæðinu með stækkun á Gamla Garði með viðbyggingu og hugsanlegri nýtingu Stapa sem stúdentaíbúða, samkvæmt uppdr. Andrúms arkitekta ehf. dags. 15. febrúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Kynnt. 
Gestir
Kl. 10:16 tekur áheyrnarfulltrúinn Daníel Örn Arnarsson sæti á fundinum. Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri og fulltrúar Andrúms arkitekta ehf. Haraldur Örn Jónsson og Kristján Garðarsson og fulltrúi Félagsstofnunar stúdenta Guðrún Björnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.