Þingholtsstræti 25, málskot
Þingholtsstræti 25 (01.183.3)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 34
10. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram málskot P ARK teiknistofu sf dags. 18. febrúar 2019 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 14. desember 2018 um breytingu á deiliskipulagi Grundarstígsreits vegna lóðarinnar nr. 25 við Þingholtsstræti sem felst í viðbygging við suðurgafl núverandi húss verði stækkuð, vestursvalir verði stækkaðar, íbúðum fjölgað, fyrirhugaður göngustígur að almenningsgarði frá Spítalastíg verði felldur niður o.fl. samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 28. ágúst 2018. Einnig er lagt fram bréf P ARK teiknistofu dags. 6. mars 2018. Fyrri afgreiðsla skipulagsfulltrúa frá 14. desember 2018 staðfest. 
Svar

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. 

Gestir
Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101954 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016139